Hugform ehf. - námskeið, fræðsla, ráðgjöf - Rósa Traustadóttir - Austurvegi 21c - 800 Selfoss - s. 898 2295

[heim]


Hvað er Feng Shui ?
Bein þýðing er vindur og vatn
Feng Shui er í raun allsherjar sýn á heiminum þar sem himininn, jörðin, maðurinn, plöntur, dýr og hlutir skipta máli. Lífsorkan eða CHI er í öllu Feng Shui er 3000 ára gömul austurlensk heimspeki. Samkvæmt Feng Shui getur þú staðsett og endurskipulagt heimili þitt eða vinnustað og þannig unnið með orkunni. Með því að vinna með orkunni getur þú aukið velgengni þína hvort sem er á sviði heilsu, andlegs lífs, fjárhags eða starfsánægju. En það var aldrei ætlun kínversku meistaranna sem þróuðu Feng Shui á mörg þúsund árum að allt þetta tækist með því einu að færa til húsgögn heima hjá sér. Feng Shui er miklu meira en það. Sumir hafa gengið svo langt að kalla þessa fræðigrein innréttingaheimspeki sem er of mikil einföldun. Manneskjan sjálf hefur jafn mikið vægi, viðhorf hennar skoðanir lífsstíll, mataræði og hreyfing. Það er spurningin að vinna með lífskraftinum vera í flæðinu og síðan er hægt að gera þetta enn persónulegra út frá Feng Shui stjörnuspeki. Feng Shui er ekki áfangastaður heldur stöðugt ferðalag sem vindur upp á sig eftir því sem ný vitneskja bætist við, sú vitneskja breikkar og stækkar heildarmyndina.

Lögmál Feng Shui eru t.d. notuð til að aðgreina góðar og slæmar áttir fyrir hvern og einn. Hvar er best að staðsetja heimili sitt, hvernig er best að útidýrnar snúi osfrv. Á heimilum getur rétt staðsetning samkvæmt Feng Shui myndað góð tengsl milli hjóna, ýtt undir góða heilsu, dregið að gæfu og velgengni og hjálpað til við að skapa góðan orðstír. Í kínverskri menningu skipar fjölskyldan og orðstírinn háan sess og var litið á gottt Feng Shui sem nauðsyn fyrir kærleiksrík samskipti karls og konu og myndu auka líkur á barnaláni og góðan orðstír fyrir fjölskylduna. Sömu lögmálin gilda í viðskiptalífinu. Slæmt Feng Shui mun hins vegar auka á veikindi, slys og fjárhagslegt tjón. Slæmt Feng Shui verður til þess að tækifæri gloprast niður, starfsferill bliknar og fjárhagur versnar. Gott Feng Shui er janfvægi við hina 5 eðlisþætti jarðar þ.e. vatn, tré, eld, jörð og málm.

Grein um Feng Shui eftir Rósu Traustadóttur skoða

FENG SHUI TENGLAR:


Góð ráð fyrir alla sem vilja tileinka sér Feng Shui:

1. Ráð ef þú vilt beita lögmálum Feng Shui
Það er í raun að taka vel til með feng shui hugarfari, sem byggist á því að losa sig við allt óþarfa drasl og hluti sem þú notar ekki og þykir ekki vænt um.
Hvað er drasl/óreiða samkvæmt Feng Shui?

  • Gamalt dót sem þú notar ekki lengur
  • Hlutir sem þér þykir ekki vænt um
  • Gömul föt sem þú ert hættur að nota
  • Gamlar bækur sem þú notar ekki lengur
  • Óreiða í eigin huga, neikvæðar tilfinningar
  • Drasl kallar á meira drasl!!!!!
Ef þú fyllir íverustað þinn hvort sem það er heimili eða vinnustaður af óþarfa drasli, gefur þú ekki færi á að fá ný tækifæri inn í líf þitt. Þú ert að blokkera Chi eða orku. Um leið og þú lætur eitthvað af hendi færðu eitthvað tilabaka, það er sannreynt lögmál
 

2. Ráð ef þú vilt beita lögmálum Feng Shui
Þegar þú ert búin að losa þig við óþarfa hluti og hluti sem þér þykir ekki vænt um þá er næsta skrefið að huga að aðkomunni að húsinu þínu eða íbúðinni þinni. Hvernig er umhorfs? Hver er fyrsta tilfinningin sem þú færð? Er eitthvað sem þarf að laga? virkar dyrabjallan? er húsið þitt merkt? Er aðkoman snyrtileg? Ef þú værir að koma að húsinu/íbúðinni þinni í fyrsta sinn, hvaða tilfinningu fengir þú?
Allir sem ganga framhjá  húsinu/íbúðinni þinni senda ákveðna orku, hvaða orku ert þú að fá frá öðrum oft á dag?

3. Ráð 
Hvernig snýr húsið þitt/íbúðin þín? þá er að sækja kompásinn og finna hvernig áttirnar snúa. Best er að standa í aðaldyrum og snúa út úr húsinu/íbúðinni og taka áttina þannig. Síðan er næsta skref að huga að Pa Kua hússins/íbúðar þ.e. hvernig snúa hinir ýmsu þættir? hvar er samskipta- og ástar hlutinn? hvar er framinn og velgengninn? hvar er heilsusvæðið og hvar lendir baðherbergið? hvað er það sem þú vilt örva og bæta? allt þetta byggist á að taka áttirnar nákvæmlega og leggja síðan Pa Kua yfir. Meira um Pa Kua í næstu viku.

4. Ráð
Hvað er Pa Kua?
Það er það sem skiptir hvað mestu máli þegar unnið er með Feng Shui, þannig finnum við hvar hin ýmsu svæði eru í húsinu/íbúðinni eru þ.e. frægð og frami, samskipti og ást, börn og hugmyndir
 

Suð-austur
4
TRÉ
Lífsgæði og blessun
Suður
9
ELDUR
Frægð og viðurkenning
Suð-vestur
2
JÖRÐ
Hjónaband og samskipti
Austur
3
TRÉ
Heilsa og fjölskylda
Miðjan
5
JÖRÐ
Jafnvægi og heilsa
Vestur
7
MÁLMUR
Börn, áform,
sköpunarkraftur
Norð-austur
8
JÖRÐ
Nám og íhugun
Norður
1
VATN
Velgengni og starfsframi
Norð-vestur
6
MÁLMUR
Vinir, ferðalög, velgjörðamenn

Þá er bara að leggja Pa Kua planið yfir teikningu af húsi/íbúð og skoða hvar hin ýmsu svæði lenda og vinna út frá því. 

5. Ráð
Hvernig er aðkoma hússins/íbúðar? er hún snyrtileg? lítur allt vel út? hugsar þú í huganum þegar þú kemur heim " mikið á ég gott að búa hér ". Mjög mikilvægt í Feng Shui að aðkoman sé góð á því byggist framhaldið þ.e. hvernig CHI (orku) ert þú að fá inn í heimilið þitt.

6. Ráð
Hvernig lítur anddyrið út? snyrtilegt? ekki of mikið af fötum sem engir notar og skór útum allt? það er mjög slæmt og stöðvar hið góða CHI sem við viljum fá inn til okkar. Er spegill beint á móti aðalhurðinni? það er mjög neikvætt, prófaðu að taka hann niður og setja t.d. til hliðar við útidyrahurðina, þannig stækkar þú rými anddyrisins og kastar ekki hinu góða CHIi beint út aftur. Hafðu bjóðandi innkomu t.d. falleg blóm eða  mynd. Rólega lýsingu og ekki of sterka liti. Hér er mjög gott að nýta sér áhfrif peningafrosksins ef við viljum setja áherslu á aukið fjárstreymi til heimilisins, passa að hann snúi rétt!

7. Ráð
Gangurinn og holið: áfram er það snyrtimennskan sem gildir og að hafa ekki ofhlaðið af húsgögnum og myndum. Nota spegla ef þröngir  gangar, nota létta gardínu ef gangur mjög langur. Hafa myndir uppi sem þér þykir vænt um og koma þér í gott skap hafa liti að mestu ljósa en hægt að nýta sterka liti með fer eftir hvernig höfuðáttirnar snúa. 

8. Ráð
Svefnherbergið:  við verjum ótrúlega miklum tíma í svefnherberginu og því er það mjög mikilvægur hluti af rými hússins/íbúðarinnar. 
Í fyrsta lagi hvernig er best að rúmið snúi? best er að það sé upp að heilum vegg með góðu útsýni að hurð þ.a. þú sjáir hver er að koma inn um dyrnar þegar þú liggur í rúminu. Mjög gott er að rúmið sé með góðan höfuðgafl, það skapar góða vernd. 
Gott að hafa náttborð báðum megin við rúmið (ef um hjónarúm að ræða) og lampa á borðunum, forðast skal lampa sem eru veggfastir og lýsa beint niður það myndar óþarfa spennu og þrýsting til lengri tíma litið. Speglar skulu vera fáir og fremur smáir og alls ekki staðsettir þannig að þú sjáir sjálfan þig úr rúminu. 
Gott að hafa fallegar myndir  sem minna þig á markmið þín en róa þig jafnframt niður. Losa um allt óþarfa drasl sérstaklega á bak við hurðir og undir rúmi þar er best að hafa snyrtilegt og sem minnst af aukadóti. Alls ekki að hafa óhreinatausdall  inni í svefnrýminu. Til að vekja rómantíkina er gott að hafa mandarínandarpar í rýminu t.a.m. í glugga eða best í suðvesturrými herbergisins. Gott að taka til í fataskápum sem eru í svefnrými og rýma til í skápunum t.d. hægt að setja í kassa föt sem ekki hafa verið notuð í eitt ár eða meira.
Mjög gott að venja sig á að búa um rúmið á hverjum morgni og loka þannig nóttinni og taka vel á móti deginum.
 
 
 


[heim]


Ábyrgðarmaður: Rósa Traustadóttir / Vefsíðugerð: Kristín Runólfsdóttir -www.kurl.is