Hugleiðsla eftir Swami Rama
The real meaning of meditation
Lausleg þýðing úr Yoga Joyful Living
10. tbl. 2006 s. 37
Hugleiðsla er tækni til að hvíla hugann og ná
því hugarástandi sem er mjög ólíkt
vakandi ástandi. Hún er leið til að ná öllum
stigum af sjálfum okkur og skynja og upplifa okkar eigin dýpsta
eðli. Hugleiðsla er ekki tengd trú; hún er fræðigrein
sem þýðir að hún lýtur ákveðinni
reglu, hefur ákveðið lögmál og framleiðir
árangur sem hægt er að mæla. Í hugleiðslu
er hugurinn skýr, afslappaður og beinist ákveðið
inn á við. Þegar þú hugleiðir ertu alveg
vakandi en hugur þinn beinist ekki að heiminum fyrir utan eða
því sem gerist í kringum þig. Hugleiðsla
þarfnast innra ástands sem er kyrrt og skýrt
þ.a. hugurinn verður hljóður. Þegar hugurinn
er hljóður og truflar þig ekki þá dýpkar
hugleiðslan.
Frá unga aldri hefur okkur verið kennt að kanna og sannreyna
heiminn í kringum okkur. Enginn hefur kennt okkur að leita inn
á við að finna innra með okkur og sannreyna það
sem við skynjum. Því erum við ókunnug okkur
sjálfum þegar við reynum að kynnast öðrum.
Þessi skortur af sjálfsskilningi er ein meginástæðan
fyrir því að samskipti okkar við aðra mistakast
og hversvegna við upplifum svo oft ringulreið og vonbrigði
í okkar lífi.
Mjög lítill hluti hugar okkar er menntaður úr
okkar menntunarkerfi. Hluti hugans sem dreymir og sefur, hið mikla
ríki undirvitundarinnar sem er reynslunáma okkar, er áfram
óþekkt og óöguð, við stjórnum því
alls ekki. Það er satt að allur líkaminn er
í huganum en allur hugurinn er ekki í líkamanum. Nema
fyrir tilstilli hugleiðslu, það er engin önnur leið
til að ná að þroska eða ná einhverri
stjórn á óendanleika hugans.
Markmið hugleiðslu er að fara lengra en hugur okkar og
upplifa okkar undirstöðueðli
sem er lýst sem friði, hamingju og alsælu eða
fullkominni hamingju. En hver sem reynt hefur að hugleiða veit
að hugurinn sjálfur er stærsta hindrunin milli okkar sjálfrar
og þessa meðvitundar. Hugurinn er óagaður og óstýrilátur
og berst á móti allri viðleitni við að aga eða
beina honum í ákveðinn farveg. Hugurinn á sér
sinn eigin huga. Það er þess vegna sem svo margir sitja
í hugleiðslu og upplifa aðeins draumóra og eigið
ímyndunarafl og dagdrauma. Þeir ná aldrei kyrrðinni
sem greinir á milli ósvikinni reynslu af dýpri
hugleiðslu.
Okkur er kennt hvernig við eigum að haga okkur í hinum
ytri heimi en okkur en aldrei kennt að vera kyrr og skoða hvað
er innra með okkur sjálfum. Þegar við lærum
það í gegnum hugleiðslu, náum við mestri
hamingju sem nokkurn tímann er hægt að öðlast
í lifenda lífi. Öll gleði og hamingja í hinum
ytra heimi er tímabundin en hamingja af hugleiðslu er geysimikil
og endalaus. Þetta eru ekki ýkjur þetta er sannleikur
sem rökstuddur er af þeim sem hafa afsalað sér heiminum
og upplifað sannleika og frá þeim sem halda áfram
að lifa í okkar heimi en eru þó ósnortnir
af honum.
Hugleiðsla er praktískt tæki til að róa
sjálfan sig og láta af hlutdrægni og sjá hvað
er með opnum og skýrum huga. Þetta er leið til að
þjálfa hugann þannig að þú ert ekki
auðveldlega afvegaleiddur og flæktur í hringiðu daglegrar
rútínu. Hugleiðsla kennir þér hvernig þú
getur skipulega kannað innri víddir þínar.
Þetta er skipulag skuldbindingar en ekki boðorða. Þú
skuldbindur þig við sjálfan þig, þína
leið og við það markmið að þekkja sjálfan
þig. Á sama tíma ætti sá lærdómur
að vera rólegur og kyrr en ekki að verða að seremónínu
eða trúarlegu athæfi, heldur nauðsyn líkamans.
Hugleiðsla er í raun að læra að vera kyrr.
Kyrrðin verður að byrja í líkamanum, sitja með
beint bak. Finna sér góðan stað þar sem lítir
óreiða er og þar sem þú verður ekki fyrir
truflun. Fyrst kyrrum við líkamann, slökum á hverjum
vöðva og hverri sin.
Hugleiðsla er listin að gefa eftir. Þegar líkaminn
er slakur og kyrr, færum við einbeitinguna að andardrættinum.
Skoðum hann, hvernig öndum við, hvernig bregðast
lungun við, þú verður að dýpka öndunina
nýta allt lungnarýmið ekki bara anda brjóstöndun,
heldur þindaröndun láta þindina stjórna.
Halda áfram að skoða öndunina, fylgjast með henni
án þess að reyna að stjórna. Í fyrstu
er öndunin óregluleg en smám saman verður hún
regluleg og jöfn. Hugleiðsla er aðferð til að gefa
sig fullkomlega að því sem þú hefur kosið
að einbeita þér að. Í þessu tilfelli
að önduninni. Leyfðu sjálfum þér að
upplifa öndunina á opin hátt. Ekki dæma eða
reyna að stjórna eða breyta. Opnaðu sjálfan þig
svo mikið svo það verði engin skil milli þín
og öndunar þinnar. Þannig munu margar hugsanir koma upp
í hugann: ,,Er ég að gera þetta rétt? Kannski
hefði ég átt að loka glugganum. Hvenær er þetta
búið? Ég gleymdi að hringja mikilvægt símtal.
Mér er illt í hnakkanum.” Hundruð hugsanir munu koma,
en hver hugsun mun kalla fram viðbrögð: dóm, gjörð,
áhuga að skoða hugsunina nánar, að reyna að
losa sig við hugsunina.
Á þessu stigi áttu bara að vera án
þess að gera nokkuð, þú munt uppgötva hversu
órólegur hugur þinn er. Hann mun fara hingað og
þangað, en það er bara vandamál þegar
þú samsamar þig að huganum og bregst við viðkomandi
hugsun. Ef þú gerir það ertu veiddur í net
óróleikans, en ef þú barar skoðar hugsanirnar
þegar þær koma án þess að bregðast
við þeim, þá geta þær ekki lengur truflað
þig. Mundu það er ekki hugsunin sem truflar heldur viðbrögð
þín við þeim.
Hugleiðsla er mjög einföld. Hugleiðsla er að
veita athygli. Þú getur byrjað að veita öndun
þinni athygli og ef hugsun kemur, veittu henni athygli, taktu eftir
henni, vertu opin gagnvart henni og hún mun líða hjá.
Þá veitir þú aftur önduninni athygli. Venjubundið
atferli er að bregðast við hverri hugsun, sem gerir þig
önnum kafinn í hafsjó ringulreiðar. Hugleiðsla
kennir þér að veita athygli því sem er að
gerast án þess að bregðast við, það
er það sem skiptir öllu máli. Það gefur
þér frelsi frá huganum og í þessu frelsi
ferð þú að upplifa hver þú ert. Þú
upplifir innri gleði og ánægju, þú upplifir
feginleik og innri slökun og þú finnur hvíld í
allri ringulreið hversdagslífsins. Þarmeð ertu búin
að gefa þér innra frí. Þetta innra
frí er ekki afturhvarf frá heiminum heldur grunnur að
innri friði. Þú verður líka að læra
að beita tækni hugleiðslunnar á daglegt amstur
hversdagsins þannig nærðu meiri árangri í
þínu lífi. Með því að stunda hugleiðslu
lærir þú að vera opin fyrir því sem
kemur inn á borð til þín og gefa því
alla þína athygli.
Venjulega, bregst þú við upplifun á sama
hátt og við hugsunum þ.e. ef einhver segir eitthvað
neikvætt við þig, verður þú reiður
eða leiður. Ef þú týnir einhverju kemstu í
tilfinningalegt uppnám. Skap þitt miðast af því
sem þú tekur þér fyrir hendur og útkoman
verður svolítið eins og rússíbanaferð.
Þú bregst við áður en þú hefur
að fullu meðtekið við hverju þú ert
að bregðast við. Þú ert strax búin að
túlka það sem þú sérð eða
heyrir miðað við væntingar þínar, ótta
þinn, fordóma eða mótþróa. Þú
styttir þér leið með upplifun þína og
miðar við svipaðar aðstæður og færð
sem útkomu eina eða tvær fyrirséðar leiðir
í staðinn fyrir að bregðast við aðstæðum
með opin huga og frumleika.
Ef þú beitir tækni hugleiðslunnar gagnvart því
sem kemur til þín getur þú veitt því
óskoraða athygli þína. Þú skoðar
viðbrögð þín án þess að bregðast
við þeim viðbrögðum strax. ,, Svakalega finnst mér
ég ógnað af þessu “. Vertu opinn gagnvart
þínum viðbrögðum, leyfðu öllu að
komast upp á yfirborðið ekki bara einhverri fastmótaðir
tilfinningu eða viðbragði heldur leyfa þér að
upplífa meira og velja síðan þau viðbrögð
sem gagnast þér best í þetta skipti.
Þannig verður hugleiðslan að meðferð, sem
leiðir til innra jafnvægis og stöðugleika en að
sama skapi koma veikleikar þínir og venjur upp á yfirborðið.
Vertu þolinmóður, hugleiddu helst á hverjum
degi. Hver verkun hefur gagnverkun. Það er ekki hægt að
hugleiða án þess að finna fyrir og njóta ávinnings.
Þú tekur kannski ekki strax eftir þeim en hægt
og bítandi byggir þú upp undirvitundina sem
mun hjálpa þér þegar til lengri tíma er
litið. Ef þú sáir fræi í dag muntu
ekki uppskera á morgun en að lokum muntu gera það.
Það tekur tíma að sjá árangur, gefðu
þér tíma. Hugleiðsla þýðir að
komast smám saman til botns á öllum sviðum lífs
þíns, eitt af öðru. Vertu heiðarlegur við
sjálfan þig. Ekki láta skoðanir og upplifanir annarra
trufla þig – vertu einbeittur á þitt markmið. Það
er hugur þinn sem leyfir þér ekki að hugleiða.
Að vinna með huganum þarfnast mikillar þolinmæði.
Í fyrstu muntu sjá árangur á sviðum
slökunar og skapsveiflur minnka. Seinna muntu sjá fleiri minniháttar
breytingar. Margar hverjar mjög smávægilegar í
fyrstu en geta skipt sköpum á innri vellíðan. Haltu
áfram vertu þrautseigur og þú munt finna að
hugleiðslan mun leysa þig undan oki kvíða og undan
áhyggjum og veita þér frelsi til að vera
hér og nú.
Skoða stundaskrá í jóga