|
Hugform ehf. - námskeið,
fræðsla,
ráðgjöf - Rósa
Traustadóttir - Austurvegi 21 c - 800 Selfoss - s. 898
2295
[heim]
Heilsuráðgjöf
fyrir þig
Ég Rósa
Traustadóttir jógakennari er í fjarnámi
við Institute of
Intergrative Nutrition í New York og mun útskrifast sem
Certified Health
Counselor eða Löggiltur Heilsuráðgjafi í
byrjun næsta árs.
Ég hef alltaf haft mikin
áhuga á
heilsu og mataræði, því tók
ég þá
ákvörðun að auka þekkingu mína
á þessu sviði og fór í þetta
nám.
Ég er
þjálfuð til þess að
ráðleggja fólki um mataræði og
heilbrigðan lífstíl og fæ mjög
ýtarleg gögn og
fræðslu um að leiðbeina og ráðleggja
fólki varðandi fæði og lífstíl
almennt.
Þetta er afar
fræðandi og skemmtilegt
nám með það að leiðarljósi að
gefa nemendum mjög góðan bakgrunn í
heilsutengdum
málum og hvernig best er að taka á þeim
í fullu samráði við
skjólstæðinga.
Í júní
fer ég að taka að mér
skjólstæðinga og mun verðið þá
vera lægra en þegar ég er komin með full
réttindi.
Hvað er innifalið?
Þér er boðið
upp á frían tíma þar sem við
ræðum þína heilsu og þín
markmið, algerlega þér að kostnaðarlausu,
engar skuldbindingar!
Ef þú vilt síðan vinna með mér
áfram leggjum við niður fyrir okkur framvinduna og
skipuleggjum tímana þína. Sem
skjólstæðingur minn færðu 2 einkatíma
á mánuði, aðgang að mér gegnum
tölvupóst eins mikið og þú kýst,
prufur af ýmsu nýju til að elda og smakka,
fyrirlestra og ýmislegt annað spennandi.
Kostnaðurinn er kr. 8000 á mánuði í
5 mánuði ef þú kýst að borga allt
á einu bretti færðu 25 % afslátt og
þú borgar aðeins kr. 30.000 fyrir 5 mánaða
tímabil þar sem við tökum heilsu
þína algerlega í gegn!
Hversu hátt
verðleggur þú heilsu þína?
Tíminn er 50 mínútur þú getur
líka gert þetta í gegnum símann
þá hringir þú í mig á tilsettum
ákveðnum tíma og við gerum þetta
símleiðis. Auðvitað er fullum trúnaði
heitið.
Má bjóða
þér frían tíma í
heilsuráðgjöf?
Ef svo er hafðu þá endilega samband við mig :)
Rósa Traustadóttir
Jógakennari og
heilsuráðgjafi
Sími: 898 2295
rosat@simnet.is
_____________________________________________________
[heim]
|