Hugform ehf. - námskeið, fræðsla, ráðgjöf -
Rósa Traustadóttir - Austurvegi 21 C - 800 Selfoss - s. 898 2295

[heim]

Jógastöðin er komin í sumarfrí fram í ágúst, sendum upplýsingar út þegar nær dregur. Settu þig endilega á póstlistann hjá okkur þá færðu nýjustu upplýsingar. Sendu okkur  póst og við sendum þér í staðinn grein um hvernig öndun getur dregið úr streitu og kvíða rosat@simnet.is


Stundaskrá frá 1. maí. 2010 
Timar Mánudagur Þriðjudagur  Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
kl. 12.10 - Hádegisjóga
-

Hádegisjóga

kl. 16.10









kl. 17.15
    
Jóga frh.

Jóga frh.
Göngujóga, hefst í maí.
-
kl. 18.00  

Mjúkt jóga


Mjúkt jóga



kl. 18.20




 


Skýring á tímum
Jóga framhald : Fjölbreyttir tímar sem henta þeim sem stundað hafa jóga áður og/eða farið á byrjendanámskeið. Mælt er með því að byrja ástundun á byrjendanámskeiði eða í jóga fyrir stirða og stressaða.

Hádegisjóga: Kennt þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 - 12.50.  Góðar æfingar sem henta flestum. Auka orku fyrir daginn. Te og nasl í lok tímans.

Mjúkt jóga: Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18.00 Góðar æfingar sem henta flestum, farið yfir allan líkamann góð öndun og slökun í lokin. Gott að byrja jógaástundun í þessum tíma.

Slökunarjóga: Gott fyrir þá sem hafa ekki prófað jóga áður og langar að fá góðar teygjur og góða slökun í lok dagsins. Góðar æfingar, góðar teygjur góð slökun.

Hægt er að skrá sig hjá Rósu í síma 898 2295 eða senda tölvupóst  á  rosat@simnet.is

VERÐSKRÁ  2010:
Gerðu jóga að lífsstíl!
 

Verðskrá  haust
               2009
Mánaðarkort í framhaldstíma, mjúkt jóga, slökunarjóga og hádegistíma. 
kr. 8.000
Stakur tími
              kr. 1200
Annarkort:
frá 7. jan.- 1. júní 2010.
Greiðist að fullu f. 15. feb. ef  tvær greiðslur leggst kr. 1500 við seinni greiðslu.
        kr. 27.000    
3ja mánaða kort
      kr. 19.000   
-
          -
-
            -


Hægt er að leggja inn á reikning: 152-26-100530 kt. 5308992849 Hugform ehf. Nauðsynlegt er að greiða námskeið fyrirfram eða í síðasta lagi í fyrsta tíma til að tryggja sér aðgang.

ATHUGIÐ:
Kortin gilda þann tíma sem þau eru keypt hvort sem viðkomandi mætir eða ekki. Þann tíma sem kort eru gild er tekin frá dýna fyrir viðkomanda. 

Jóga fyrir þig:
Jógafræðin er margra alda gömul og samanstendur af stöðum eða æfingum, öndunaræfingum og slökun. Hver tími byggist upp af þessu þrennu og síðan geta þeir sem vilja bætt við sig heimspekinni og hugað að mataræðinu sem tengist jógafræðunum. 

Jóga vekur þig til umhugsunar um líkamsbeitingu þína, gerir þig meðvitaðan um öndun, hugsun, orð og athafnir. Jóga er fyrir alla og hentar öllum, konum og körlum. Jóga styrkir og slakar á líkamanum opnar fyrir flæði og dregur úr verkjum. Öndunin er leiðarljósið í jóga og með meðvitaðari öndun tengjum við huga og líkama. 

Jógastöðin á Selfossi leitast við að skapa þægilegt og traust umhverfi þar sem hægt er að leggja til hliðar daginn og ná sér í orku og vellíðan. 


Samkvæmt nýrri  könnun kemur í ljós að regluleg hugleiðsla fækkar dauðsföllum. Könnunin skoðaði lífshætti hjá eldra fólki sem er með háan blóðþrýsting, í ljós kom að dauðsföll voru allt að 23 % færri meðal þeirra sem stunduðu hugleiðslu. Í hópi þeirra sem stunduðu hugleiðslu urðu 30 % færri dauðsföll af völdum  hjartasjúkdóma og 49 % færri af völdum krabbameins. Greinilega kemur í ljós að leiðir til að minnka streitu skila sér í lengra og heilbrigðara lífi.
Skoða grein um hugleiðslu

(The Guardian ; Heilsufréttir  10. jan 2006, 12. tbl.)
 
 


[heim]


Ábyrgðarmaður: Rósa Traustadóttir / Vefsíðugerð: Kristín Runólfsdóttir -www.kurl.is