|
Hugform ehf. - námskeið,
fræðsla,
ráðgjöf - Rósa
Traustadóttir - Miðengi 3 - 800 Selfoss - s. 482
2296/898
2295
[heim]

Á þessu námskeiði
lærir
þú að efla hæfni þína í
mannlegum
samskiptum, setja þér markmið, styrkja
sjálfstraustið
ásamt því að liðka líkamann og
læra slökun.
Aðaláherslan á þessu
námskeiði er
að kynnast sjálfum sér betur, að byggja upp
sjálfstraust
og sjálfsvirðingu, og að taka ábyrgð á
sjálfum sér. Kenndar eru sannreyndar aðferðir til
að efla sjálfan sig og einbeita sér að
sínum
sterku hliðum.
Kannanir sýna að þeir sem hafa heilbrigt og
jákvætt
sjálfsmat, gengur betur í flestu sem þeir taka
sér
fyrir hendur. Þeim líður betur og líta
jákvæðari
augum á lifið og tilveruna almennt. Samkvæmt
rannsókn
Myers og Dieners einkennir hamingjusamt fólk gott
sjálfsálit
og meiri stjórn á eigin lífi ásamt
því
að vera bjartsýnna og félagslyndara en
aðrir.
Við skoðum markmiðasetningu og leiðir til að efla
mannleg samskipti. Það
er staðreynd að gott sjálfsmat er einn af hornsteinunum
að hamingjuríki lífi og ef við eigum gott með
að umgangast fólk gengur okkur betur í öllu sem
við tökum okkur fyrir hendur.
Þetta námskeið byggir á
hugmyndafræði
Brians Tracy, Napóleons Hill, Zig Ziglar og Victoriu Moran.
Hægt er að sníða þetta
námskeið að þörfum hópa og
fyrirtækja. Hægt er að kenna þetta einu sinni
í viku í 5-6 vikur en einnig hægt að taka
þetta á tveimur kvöldum. Allt hvað hentar hverjum
hóp.
Leiðbeinandinn:
Leiðbeinandi námskeiðsins er Rósa
Traustadóttir
sem er sérþjálfaður
leiðbeinandi fyrir Brian Tracy International. Hún er
menntaður
Bókasafns-
og upplýsingafræðingur frá
Háskóla
Íslands og einnig með BA gráðu í Ensku
einnig
er hún menntaður jógakennari og er að á
sér í réttindi sem heildrænn
heilsuráðgjafia, certified health coach frá
Integrated Nutrition New York.
Skráning:
Hægt er að skrá sig með tölvupósti
og einnig er hægt að hringja í síma 898 2295.
Hafðu samband!
[heim]
Ábyrgðarmaður: Rósa
Traustadóttir
/ Vefsíðugerð: Kristín
Runólfsdóttir -www.kurl.is
|